Hópurinn sem heldur til Dublin
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 18 leikmenn er halda til Írlands á morgun til að leika í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2009. Leikið verður á Richmond Park, sunnudaginn 26. október kl. 15:00. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 30. október kl. 18:10.
Sigurvegari úr þessum viðureignum mun tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM kvenna sem fram fer í Finnlandi 2009.