U19 karla leikur gegn Makedóníu
Strákarnir í U19 leika í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Makedóníu. Heimamenn eru mótherjarnir í dag og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Kristinn R. Jónson, landsliðsþjálfari U19, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Arnar Darri Pétursson
Hægri bakvörður: Jóhann Laxdal
Vinstri bakvörður: Þórarinn Ingi Valdimarsson
Miðverðir: Eggert Rafn Einarsson og Marko Valdimar Stefánsson
Tengiliðir: Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði, Haukur Baldvinsson og Rúnar Már S Sigurjónsson
Hægri kantur: Aaron Palomares
Vinstri kantur: Kristinn Jónsson
Framherji: Björn Bergmann Sigurðarson
Þetta er þriðji leikur Íslands í riðlinum en áður höfðu strákarnir gert jafntefli við Svía en tapað gegn Austurríki.