Tap gegn Makedóníu hjá U19 karla
Strákarnir í U19 liðinu töpuðu gegn Makedóníu í dag í undankeppni EM en leikið var í Makedóníu. Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamennn eftir að markalaust hafði verið í hálfleik.
Þetta var síðasti leikur liðsins í þessari undankeppni en áður hafði liðið gert jafntefli við Svía en tapað gegn Austurríki.
Mark heimamanna kom á 72. mínútu og þremur mínútum síðar var fyrirliðinn, Finnur Orri Margeirson, rekinn af velli. Einum færri tókst Íslendingum ekki að jafna metin svo þar við sat.