• fim. 16. okt. 2008
  • Fræðsla

KSÍ VI þjálfaranámskeið í Lilleshall

Þjálfari að störfum
coaching6

KSÍ heldur VI. stigs þjálfaranámskeið í Lilleshall, Englandi dagana 16.-23. janúar 2008.  Reiknað er með að fleiri þjálfarar sæki um námskeiðið en hægt er að taka inn.  Umsækjendur þurfa því að fylla út umsóknareyðublað.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði.

Í viðhengi er umsókn að KSÍ VI þjálfaranámskeiðinu sem fer fram í Lilleshall, Englandi 16.-23. janúar næstkomandi. 

KSÍ vekur athygli á því að síðasti dagur til að skila inn umsókninni er 1. nóvember næstkomandi, en auðvitað má skila umsóknum fyrr.

Síðast kostaði KSÍ VI námskeiðið 160.000 krónur.  Það er líklegt að kostnaður námskeiðsins hækki eitthvað vegna hækkandi gengis og síðast var rukkað of lítið, en kostnaðurinn verður þó vonandi ekki meiri en 200.000 krónur á mann.  Þegar nákvæmara verð liggur fyrir, verður það gefið út. 

Hægt verður að skipta greiðslunni eitthvað niður eftir nánara samkomulagi við Pálma Jónsson fjármálastjóra KSÍ.
Fræðslunefnd KSÍ stefnir á að taka inn 20-25 þjálfara á námskeiðið, eftir fjölda og hæfni umsækjenda.
Á námskeiðinu er 100% mætingarskylda og það er bæði bóklegt og verklegt.  Þátttakendur þurfa að taka þátt í verklegum tímum.

KSÍ VI þjálfaranámskeiðið er hluti af UEFA A þjálfaragráðu.  Flesta dagana verður námskeiðið haldið í Lilleshall.  Einum degi verður varið til heimsóknar í klúbb í ensku úrvalsdeildinni þar sem skoðuð verður knattspyrnuakademía.  Einum degi verður varið í leikgreiningu á leik í ensku úrvalsdeildinni. 

Á námskeiðinu kenna kennarar frá KSÍ og erlendir fyrirlesarar, væntanlega frá enska knattspyrnusambandinu.  Hluti námskeiðsins fer fram á ensku.

Skriflegt próf verður haldið 2-3 vikum eftir KSÍ VI námskeiðið.  Prófað verður úr námsefni KSÍ V og VI.

Nánari upplýsingar um Lilleshall má sjá á www.lilleshall.co.uk

Nánari dagskrá á námskeiðinu verður gefin út þegar nær dregur.

Allar nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Dagur Sveinn Dagbjartsson (dagur@ksi.is).

Umsókn KSÍ VI 2009