• fim. 16. okt. 2008
  • Landslið

Hópur valinn fyrir umspilsleikina gegn Írlandi

Kvennalandslidid_2008
Kvennalandslidid_2008

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn fyrir umspilsleikina gegn Írum síðar í þessum mánuði.  Sigurður Ragnar valdi 23 leikmenn í hópinn en leikið verður 26. október í Dublin og 30. október á Laugardalsvelli.

Sigurvegari úr þessum viðureignum tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram í Finnlandi 2009.

Þóra B. Helgadóttir getur ekki verið með í þessum leikjum vegna veikinda og þá verður Dóra Stefánsdóttir í leikbanni í leiknum í Dublin.

Tveir nýliðar eru í hópnum, þær Fanndís Friðriksdóttir úr Breiðabliki og Þórunn Helga Jónsdóttir úr KR.

Hópurinn