Karlalandsliðið upp um fjögur sæti
Nýr styrkleikalisti FIFA karla var birtur í dag og fór Ísland upp um fjögur sæti frá því að síðasti listi var birtur. Ísland er í 103. sæti á listanum en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.
Mótherjar Íslendinga í riðlakeppni HM 2010 á laugardaginn, Hollendingar, eru í 5. sæti listans, Skotar eru í því 26., Norðmenn í 39. sæti og Makedónía eru í 46. sæti.