Byrjunarlið U17 kvenna gegn Frakklandi
Í dag leikur Ísland sinn fyrsta leik í undankeppni EM kvenna en leikið er á Ítalíu. Fyrstu mótherjar íslenska liðsins eru Frakkar og hefst leikurinn í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma. Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
Byrjunarlið:
Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir
Aðrir leikmenn: Katrín Ásbjörnsdóttir, Hanna María Jóhannsdóttir, Rebekka Sverrisdóttir, Silvía Rán Sigurðardóttir, Heiða Dröfn Antonsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Ásta Eir Árnadóttir, Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir og Kristín Sverrisdóttir.