Hópurinn hjá U19 karla sem fer til Makedóníu
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn er fer til Makedóníu til þess að leika í undankeppni EM U19 karla. Fyrsti leikur Íslands í riðlinum verður laugardaginn 11. október við Svía en einnig eru Austurríki og heimamenn í Makedóníu í þessum riðli.