Dregið í umspili í EM kvenna kl. 10:00 á mánudaginn
Á mánudaginn verður dregið í umspili fyrir EM kvenna 2009. Ísland er í pottinum og er í A flokki og mun dragast gegn gegn þjóð úr B flokki. Þjóðirnar þar eru Tékkland, Írland, Slóvenía og Skotland en Ísland getur ekki dregist gegn Slóveníu þar sem þessar þjóðir voru saman í riðli.
Í A flokki eru:
- Ítalía (Riðill 2)
- Ísland (Riðill 3)
- Úkraína (Riðill 5)
- Rússland (Riðill 6)
Í B flokki eru:
- Tékkland (Riðill 1)
- Írland (Riðill 2)
- Slóvenía (Riðill 3)
- Skotland (Riðill 5)
Í C flokki eru:
- Spánn (Riðill 1)
- Holland (Riðill 4)
Ljóst er að þjóðirnar í C flokki munu mætast innbyrðis. Dregið verður dregin þjóð úr B flokki og leika þær þjóðir heimaleikinn á undan. Mótherjarnir verða svo dregnir úr A flokki en þær þjóðir er léku saman í undanriðlunum geta ekki lent saman í umspilinu. Þannig geta Íslendingar ekki lent á móti Slóveníu, Ítalir ekki gegn Írum og Úkraína og Skotar geta ekki lent saman.
Þetta verður allt ljóst rétt upp úr 10 á mánudagsmorgun og verður Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, fulltrúi Íslands á staðnum.