• þri. 30. sep. 2008
  • Landslið

Æfingahópur tilkynntur hjá A landsliði kvenna

Kvennalandslidid_2008
Kvennalandslidid_2008

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag 16 manna landsliðshóp fyrir umspilsleik Íslands er fara fram í október.  Í hópnum eru ekki að þessu sinni leikmenn úr Val og þeir leikmenn er leika erlendis.

Valsstúlkur eru nú að undirbúa sig undir riðlakeppni Evrópukeppni kvenna en önnur umferðin fer fram dagana 9. - 14. október og verður leikið í Svíþjóð.

Umspilsleikirnir fara fram dagana 25./26. október og síðari leikirnir 29./30. október.  Dregið verður í umspilinu næstkomandi mánudag, 6. október í höfuðstöðvum UEFA.

Dóra Stefánsdóttir fékk gult spjald í leiknum gegn Frakklandi á dögunum og var það hennar annað gula spjald.  Dóra verður því í leikbanni í fyrri umspilsleiknum.

Hópurinn