Markalaust jafntefli gegn Norðmönnum
Strákarnir í U17 léku lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Norðmenn á Vodafonevellinum. Noregur og Sviss komast áfram í milliriðla en Íslendingar sitja eftir.
Báðum leikjum dagsins lauk með markalausu jafntefli þar sem boltinn fór heldur ekki í netið í leik Úkraínu og Sviss á Grindavíkurvelli. Þar með varð ljóst að Noregur og Sviss fóru áfram í milliriðla en Norðmenn urðu efstir í riðlinum. Úkraínumenn komu næstir með fjögur stig en Íslendingar hlutu eitt stig.