Unglingadómaranámskeið í Smáranum
Næstkomandi þriðjudag, 16. september, verður haldið unglingadómaranámskeið í Smáranum í Kópavogi og hefst námskeiðið kl. 20:00 og stendur í 2 tíma.
Unglingadómaranámskeiðið er í formi fyrirlesturs og á eftir fylgja verkefni sem leysa skal heima og senda í tölvupósti. Viku síðar gangast þátttakendur svo undir unglingadómaraprófið sjálft.
Námskeiðið er frítt en aldurstakmark á námskeiðið er 15 ár.