Eins marks ósigur gegn Austurríki
Strákarnir í U21 karla biðu lægri hlut gegn Austurríki í undankeppni U21 karla fyrir EM 2009 en leikið var í Austurríki. Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamenn en þeir komust yfir eftir 5 mínútna leik.
Þrátt fyrir ágætis tilraunir tókst íslenska liðinu ekki að jafna, áttu meðal annars skot í þverslá og Austurríkismenn fóru því ósigraðir í gegnum riðlakeppnina.
Íslenska liðið leikur lokaleik sinn í riðlinum gegn Slóvakíu næstkomandi þriðjudag og fer sá leikur fram á Víkingsvelli.