Jafntefli hjá U18 karla gegn Ungverjum
Strákarnir í U18 gerðu í dag markalaust jafntefli við Ungverja en leikurinn var liður í æfingamóti er fram fer í Tékklandi. Liðið hlaut því eitt stig og komst ekki upp úr riðlinum.
Áður höfðu strákarnir tapað gegn heimamönnum, 2-0 og gegn Norðmönnum 2-1.