Byrjunarliðið hjá U18 tilbúið
Íslenska U18 karlalandsliðið leikur í dag við Ungverja á æfingamóti sem fram fer í Tékklandi. Þetta er síðasti leikur liðsins í þessu móti en liðið tapaði fyrir Tékkum, 0-2 í fyrsta leik og gegn Norðmönnum 1-2.
Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:
Markvörður: Steinar Örn Gunnarsson
Hægri bakvörður: Gísli Páll Helgason, fyrirliði
Vinstri bakvörður: Þórir Guðjónsson
Miðverðir: Brynjar Gauti Guðjónsson og Daníel Kári Snorrason
Tengiliðir: Kristinn Sigurðsson og Andri Fannar Stefánsson
Sóknartengiliður: Guðlaugur Viktor Pálsson
Hægri kantur: Arnar Sveinn Geirsson
Vinstri kantur: Ólafur Karl Finsen
Framherji: Guðmundur Magnússon