Miðasala á Holland - Ísland
Í dag hófst miðasala á leik Hollands og Íslands hér á síðunni en sá leikur fer fram Rotterdam þann 11. október næstkomandi. Leikurinn er liður í undankeppni HM 2010 en Ísland hefur þar leik gegn Norðmönnum í Osló, 6. september og stendur miðasala yfir á þann leik. Miðaverð á leikinn er 3.000 krónur.
Holland er ein af stóru þjóðunum í knattspyrnunni og margir stórkostlegir knattspyrnumenn leika með hollenska landsliðinu. Þá eru stuðningsmenn Hollands gríðarlega litríkir og fjörugir og eru fá landslið í Evrópu sem fá jafn góðan stuðning og Hollendingar. Það er upplagt fyrir Íslendinga að mæta á völlinn í Rotterdam og styðja sína menn og upplifa í leiðinni stemmningu eins og hún gerist hvað best.
Miðasala á leik Frakklands og Íslands í undankeppni EM kvenna hefst mjög bráðlega og verður hægt að kaupa miða á þann leik einnig hér á síðunni. Miðinn á þann leik mun kosta 1.500 krónur.