Tap hjá U21 karla gegn Dönum
Strákarnir í U21 karla þurftu að lúta í lægra haldi gegn Dönum í vináttulandsleik á KR velli í dag. Lokatölur urðu 2-0 fyrir Dani eftir að þeir leiddu í hálfleik, 1-0. Leikurinn var lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir síðustu leikina í undankeppni fyrir EM 2009.
Danir sóttu töluvert meira gegn ungu liði Íslendinga sem gekk illa að skapa sér marktækifæri. Danir komust yfir á 42. mínútu og skömmu síðar björguðu Íslendingar á marklínu. Þannig var staðan er flautað var til leikhlés og Danir höfðu áfram undirtökin í síðari hálfleik en allir sjö varamenn íslenska liðsins komu við sögu í leiknum. Annað mark Dana kom úr vítaspyrnu um miðjan síðari hálfleik og þar við sat á KR vellinum í dag.
Næsta verkefni íslensku strákana er leikur gegn Austurríki ytra þann 5. september en lokaleikur íslenska liðsins verður hér heima 9. september þegar leikið verður við Slóvakíu.