Byrjunarlið Íslands gegn Aserum
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Aserum í vináttulandsleik í kvöld. Tveir nýliðar eru í hópnum og er annar þeirra, Jóhann Berg Guðmundsson, í byrjunarliðinu.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Stefán Logi Magnússon
Hægri bakvörður: Grétar Rafn Steinsson
Vinstri bakvörður: Bjarni Ólafur Eiríksson
Miðverðir: Hermann Hreiðarsson, fyrirliði og Kristján Örn Sigurðsson
Tengiliðir: Pálmi Rafn Pálmason og Stefán Gíslason
Hægri kantur: Birkir Már Sævarsson
Vinstri kantur: Jóhann Berg Guðmunsson
Sóknartengiliður: Eiður Smári Guðjohnsen
Framherji: Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Leikurinn hefst kl. 19:45 á Laugardalsvelli og hefst miðasala á vellinum kl. 17:00.