Byrjunarlið Íslands U21 karla gegn Danmörku
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Dönum í vináttulandsleik í dag. Leikurinn fer fram á KR velli og hefst kl. 16:30. Aðgangur á leikinn er ókeypis og eru áhorfendur hvattir til þess að fjölmenna vestur í bæ og hvetja strákana áfram.
Byrjunarliðið(4-3-3):
Markvörður: Þórður Ingason
Vinstri bakvörður: Guðmundur Reynir Gunnarsson
Hægri bakvörður: Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Miðverðir: Hólmar Örn Eyjólfsson og Hallgrímur Jónasson
Tengiliðir: Heiðar Geir Júlíusson og Eggert Gunnþór Jónsson
Sóknartengiliður: Gylfi Þór Sigurðsson
Hægri kantur: Rúrik Gíslason, fyrirliði
Vinstri kantur: Birkir Bjarnason
Framherji: Kolbeinn Sigþórsson
Danir hafa einnig tilkynnt byrjunarlið sitt í leiknum og er það þannig skipað:
Markvörður: Kasper Schmeichel Manchester City
Aðrir leikmenn:
- Michael Jakobsen AaB
- Daniel Wass Brøndby
- Magnus Troest Parma
- Michael Lumb AGF
- Søren Christensen FC Nordsjælland
- Tobias Mikkelsen Brøndby
- Thomas Enevoldsen AaB
- Nicklas Pedersen FC Nordsjælland
- Lasse Schöne NEC Nijmegen
- Søren Rieks Esbjerg