Davíð Þór inn í hópinn gegn Aserum
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum er mætir Aserum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á miðvikudaginn. Davíð Þór Viðarsson úr FH kemur inn í hópinn í stað Arnórs Smárasonar úr Heerenveen, sem er meiddur.
Miðasala á leikinn er í fullum gangi á midi.is og bent er sérstaklega á að frítt er inn fyrir yngri iðkendur aðildarfélaga sem og ellilífeyrisþega og öryrkja. Hægt er að sjá hér hvernig nálgast má þessa miða.