Hópurinn gegn Aserbaídsjan tilkynntur
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Aserbaídsjan 20. ágúst. Valið var kynnt á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag, þriðjudag.
Tveir nýliðar eru í hópnum að þessu sinni, þeir Hólmar Örn Rúnarsson úr Keflavík og Jóhann Berg Guðmundsson úr Breiðabliki. Hólmar Örn hefur reyndar einu sinni áður verið í landsliðshópnum, gegn Spánverjum í undankeppni EM 2008, en hann kom þó ekki við sögu í þeim leik. Jóhann, sem leikið hefur einn U21 landsleik, verður 18 ára síðar á þessu ári og var á dögunum valinn besti leikmaður umferða 8-14 í Landsbankadeild karla.
Auk þeirra Jóhanns og Hólmars koma fjórir aðrir leikmenn í hópnum frá íslenskum félagsliðum. Bjarni Ólafur Eiríksson og Kjartan Sturluson frá Val, Stefán Logi Magnússon frá KR og Marel Baldvinsson frá Breiðabliki.
Þeir leikmenn í hópnum sem ekki eru nýliðar hafa allir komið við sögu í a.m.k. einum landsleik á árinu.
Landsliðshópurinn gegn Aserbaidsjan
Orðsending frá ritstjóra:
Ritun á landaheiti Aserbaídsjans er skv. Íslenskri málstöð.