Frítt fyrir yngri iðkendur, öryrkja og ellilífeyrisþega
KSÍ hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Aserbaídsjan, sem fram fer á Laugardalsvelli 20. ágúst næstkomandi kl. 19:45.
Jafnframt er öryrkjum og ellilífeyrisþegum boðinn ókeypis aðgangur að leiknum.
Aðildarfélög KSÍ sem vilja koma með hópa yngri iðkenda sinna á leikinn er bent á að hafa samband við skrifstofu KSÍ. Tilgreina þarf félag, fjölda iðkenda og tengilið/forráðamann. Gert er ráð fyrir að hóparnir komi í fylgd með forráðamönnum sem að sjálfsögðu fá líka frímiða. Miðar verða afhentir forráðamönnum á Laugardalsvelli á leikdag.
Aðgöngumiðar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega verða afhentirá skrifstofu KSÍ mánudaginn 18. og þriðjudaginn 19. ágúst, gegn framvísun viðeigandi skírteina.
KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll og styðja við bakið á strákunum okkar í þessum síðasta vináttulandsleik fyrir undankeppni HM 2010.
Við erum öll í íslenska landsliðinu!