Snæfellsnesi dæmdur sigur gegn Haukum
Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru Snæfellsness á hendur Haukum vegna leiks í b-riðli Íslandsmóts 5. flokks kvenna. Kærandi taldi lið kærða hafa verið ólöglega skipað í leiknum. Nefndin féllst á kröfur Snæfellsness og úrskurðaði félaginu 3-0 sigur í leiknum.