U17 karla hafnaði í 6. sæti á NM
U17 landslið karla hafnaði í 6. sæti á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fór í Svíþjóð og lauk á laugardag með leikjum um sæti. Okkar drengir léku gegn Skotum um 5. sætið og biðu lægri hlut.
Eina mark leiksins gerðu liðsmenn Skota og kom það í uppbótartíma í blálokin. Ísland hafnaði því í 6. sæti mótsins.
Norðmenn hömpuðu sigri á mótinu eftir úrslitaleik gegn gestgjöfunum, Svíum. Lokatölur leiksins urðu 5-2.