Miðasala á Ísland-Skotland lokuð í dag
Unnið er að breytingum á miðasölukerfi fyrir Laugardalsvöll og af þeim sökum verður miðasala á leikinn Ísland - Skotland í undankeppni HM 2010 sem fram fer miðvikudaginn 10. sept. lokuð í dag, mánudag.
Miðasalan opnar aftur um leið og vinnu við breytingar er lokið og ætti það að verða í síðasta lagi á morgun, þriðjudag. Um er að ræða fyrsta heimaleik A-landsliðs karla í keppninni.