Aga- og úrskurðarnefnd dæmir þjálfara í bann
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði tvö þjálfara í bann á fundi sínum í gær. Jónas Hallgrímsson, þjálfari Völsungs var dæmdur í eins leiks bann vegna ummæla sinna í fjölmiðlum 8. júlí síðastliðinn. Þá var knattspyrnudeild Völsungs sektuð um 20.000 krónur.
Einnig var þjálfari Tindastóls, Róbert Haraldsson, úrskurðaður í eins leiks bann vegna framkomu hans eftir leik Víðis og Tindastóls þann 12. júlí síðastliðinn. Knattspyrnudeild Tindastóls var ennfremur sektuð um 10.000 krónur.