Hópurinn hjá U17 karla er fer til Svíþjóðar
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn er heldur til Svíþjóðar til þess að taka þátt á Norðurlandamótinu. Ísland er í riðli með Noregi, Englandi og Finnlandi.
Mótið fer fram dagana 28. júlí til 2. ágúst.