Norðurlandamót U16 kvenna hefst í dag
Opna Norðurlandamótið hjá U16 kvenna hefst í dag og fer mótið fram hér á landi. A riðill, þar sem Ísland leikur, fer fram á Suðurlandi en B riðill er leikinn á Suðurnesjum. Fyrsti leikur mótsins er leikinn á Garðsvelli kl. 14:00 í dag en þá leika Svíar og Hollendingar. Hinir þrír leikirnir fara fram kl. 16:00. Á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði leika Frakkar og Finnar, Norðmenn og Þjóðverjar eigast við á Hvolsvelli og á Selfossi taka Íslendingar á móti Dönum.
Landsmenn eru hvattir til þess að fylgjast með mótinu og mæta á völlinn til þess að sjá margar af efnilegustu knattspyrnustjörnum framtíðarinnar.
Næstu leikir fara fram á þriðjudag en riðlakeppninni lýkur svo á fimmtudaginn. Á laugardaginn er svo leikið um sæti á mótinu, þar með talinn úrslitaleikurinn er fer fram á Laugardalsvelli.