Allt klárt fyrir leikinn á Laugardalsvelli
Það styttist í leik Íslands og Grikklands sem hefst á Laugardalsvelli kl. 16:30. Allt er klárt í búningklefa íslenska liðsins og vallarstarfsmenn að leggja lokahönd á að völlurinn verði tilbúinn.
Miðasala hefst nú kl. 15:30 og eru áhorfendur hvattir til þess að fjölmenna í góða veðrinu. Miðinn kostar 1.000 fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn yngri en 16 ára.
Boðið verður upp á andlitsmálningu og eru allir hvattir til þess að verða tímanlega á ferðinni og fá eitthvað þjóðlegt á andlitið.
Verið að leggja lokahönd á frágang vallarins í góða veðrinu.