Dómarar leiksins koma frá Þýskalandi
Dómari leiks Íslands og Grikklands í undankeppni EM kvenna sem fram fer á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 26. júní kl. 16:30, kemur frá Þýskalandi. Hún heitir Anja Kunick og henni til aðstoðar verða löndur hennar, Moiken Jung og Marina Wozniak. Fjórði dómari er hinsvegar hinn alíslenski Oddbergur Eiríksson. Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Skotinn George Brian Smith.