Ásta og Rakel gestir á æfingu fatlaðra - Myndaband
Síðasta sunnudag var knattspyrnuæfing fatlaðra á sparkvellinum við Laugarnesskóla en æfingin er liður í samstarfsverkefni KSÍ og ÍF. Landsliðskonurnar Ásta Árnadóttir og Rakel Hönnudóttir voru sérstakir gestir á æfingunni og var vel tekið á eins og vera ber.
Á æfinguna mætti einnig hinn kattliðugi Dagur Sveinn Dagbjartsson með myndavélina og myndaði það sem fyrir bar ásamt því að spjalla við gesti og gangandi.
Þriðja æfingin verður á sama stað, laugardaginn 28. júní og er æfingin frá 10:00 til 12:00.