Klæðum stúkuna í blátt!
Áttu gamlan landsliðsbúning, eða nýjan? Áttu bláa úlpu eða bláa peysu, bláa húfu eða trefil? Áttu bláa skó, bláa vettlinga? Áttu eitthvað blátt?
Allir áhorfendur sem leggja leið sína á Laugardalsvöllinn á fimmtudag, þegar Íslendingar og Grikkir mætast í undankeppni EM kvenna 2009, eru hvattir til að klæðast bláum lit, þannig að sá litur verði áberandi í stúkunni.
Klæðum stúkuna í blátt og sýnum samstöðu þjóðarinnar!
Allir á völlinn!
Ísland - Grikkland á Laugardalsvelli á fimmtudag kl. 16:30.
Styðjum stelpurnar okkar á EM!