Ingó Veðurguð skemmtir í hálfleik
Í hálfleik á landsleik Íslands og Slóveníu á morgun laugardag, mun Veðurguðinn Ingólfur Þórarinsson, stundum kallaður "Ingó Idol", skemmta vallargestum með gítarleik og söng. Staðfest er að hið geysivinsæla "Bahama" sé á meðal þeirra laga sem hann mun leika.
Ingó hlakkar mjög til að skemmta á kvennalandsleik og vonast eftir góðri stemmningu, en hann hefur áður skemmt í hálfleik á tveimur karlalandsleikjum við góðan orðstír.