Byrjunarlið Íslands gegn Slóveníu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Slóvenum á Laugardalsvelli, laugardaginn 21. júní kl. 14:00. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir mun leika sinn 50. landsleik og Edda Garðarsdóttir fer í 60 landsleiki.
Byrjunarliðið(4-5-1):
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður: Ásta Árnadóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir
Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Dóra Stefánsdóttir á við meiðsli að stríða og mun því ekki taka þátt í þessum leik.