Stelpurnar okkar á Facebook
Á vefsíðunni Facebook er að finna aðdáendasíðu kvennalandsliðsins. Allir Facebook notendur eru hvattir til að kíkja á síðuna og skrá sig í klúbbinn.
Stelpurnar okkar eiga sem kunnugt er góða möguleika á að komast í lokakeppni EM í Finnlandi árið 2009. Sigur gegn Slóvenum á laugardaginn getur fært liðið enn nær því markmiði. Því er mikilvægt að áhorfendur fjölmenni í Laugardalinn og styðji við bakið á liðinu, sem undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn.
Allir Facebook notendur eru hvattir til að kíkja á síðu kvennalandsliðsins og senda hana sem víðast. Breiðum út fagnaðarerindið og styðjum stelpurnar okkar til sigurs!