Tvær breytingar á hópnum hjá U21 karla
Luka Kostic, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á hóp sínum er mætir Norðmönnum í vináttulandsleik, fimmtudaginn 12. júní kl. 19:15. Leikurinn fer fram á hinum nýja Vodafonevelli.
Albert Brynjar Ingason og Hafþór Ægir Vilhjálmsson, báðir úr Val koma inn í hópinn í stað Hjálmars Þórarinssonar úr Fram og Guðmundar Reynis Gunnarssonar úr KR. Hjálmar getur ekki gefið kost á sér vegna anna í prófum og Guðmundur Reynir er meiddur.