Þjálfari ÍA dæmdur í eins leiks bann
Aga- og úrskurðarnefnd ákvað á fundi sínum í dag að úrskurða Guðjón Þórðarson, þjálfara ÍA, í eins leiks bann vegna framkomu hans eftir leik Keflavíkur og ÍA sem fram fór 25. maí síðastliðinn. Ennfremur er knattspyrnudeild ÍA sektuð um 20.000 krónur.