Hópurinn hjá U21 karla er mætir Norðmönnum
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið landsliðshóp sinn er mætir Norðmönnum í vináttulandsleik á hinum nýja Vodafonevelli. Leikurinn verður leikinn 12. júní næstkomandi og hefst kl. 19:15.
Uppistaðan í hóp Luka að þessu sinni eru leikmenn er leika hér heima. Þeir leikmenn sem leika í Evrópu, þar sem víðast hvar stendur yfir sumarfrí, fá frí í þetta skiptið.
Luka hefur valið sjö nýliða í hópinn og þar af hafa tveir þeirra nú þegar leikið sinn fyrsta A landsleik.
Þá hefur norski landsliðsþjálfarinn, Oystein Gåre, valið sinn hóp er mætir hingað til lands.