Unglingadómaranámskeið fimmtudaginn 5. júní
Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál. Námskeiðið hefst kl. 20:00.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.
Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri og er námskeiðið er ókeypis.
Skráning er hafin hjá magnus@ksi.is.