Mikilvægur sigur á Serbum
Íslenska kvennalandsliðið lagði það serbneska í dag með fjórum mörkum gegn engu. Mikill hiti setti mark sitt á leikinn en um 37 stig voru á leikvellinum á meðan leikurinn fór fram. Engu að síður byrjuðu íslensku stelpurnar af krafti og komust yfir eftir fjórar mínútur með marki Margrétar Láru Viðarsdóttur.
Þannig var staðan í hálfleik og byrjun seinni hálfleiks var svipuð og í fyrri hálfleiknum því að Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eftir aðeins tvær mínútur í síðari hálfleik. Margrét Lára og Katrín Ómarsdóttir bætt svo við mörkum og mikilvægur sigur staðreynd. Margrét Lára hefur nú skorað 37 mörk í 41 landsleik.
Íslenska liðið hefur nú hlotið 12 stig eftir fimm leiki og er í öðru sæti riðilsins, með markatöluna 14 - 2. Frakkar eru efstir með 18 stig eftir 7 leiki.
Næstu leikir íslensku stelpnanna eru gegn Slóveníu, laugardaginn 21. júní kl. 14:00 og aftur fimmtudaginn 26. júní kl. 16:30 við Grikki. Lokaleikurinn er svo gegn Frökkum ytra, laugardaginn 27. september.
Hér að neðan má sjá textalýsingu er birt var á heimasíðunni á meðan leik stóð.
Serbía - Ísland
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi yfir strax á 4. mínútu. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir átti sendingu út á kantinn á Hólmfríði Magnúsdóttur. Hún kom boltanum fyrir markið þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir tók boltann niður af yfirvegun og kom honum í netið. Frábær byrjun.
Eftir gríðarlega kraftmikla byrjun Íslendinga hefur aðeins dregið úr hraðanum en íslenska liðið stjórnar leiknum. Margrét Lára kom boltanum í markið á 10. mínútu en það var dæmt af vegna rangstöðu. Eitt gult spjald hefur litið dagsins ljós og það fengu Serbar á 12. mínútu.
Enski dómarinn hefur flautað til hálfleiks og eru leikmennirnir hvíldinni fegnir enda ákaflega heitt í veðri. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks átti Dóra Stefánsdóttir gott skot sem hafnaði í þverslánni. Íslenska liðið hefur stjórnað leiknum algjörlega og fengið ágætis tækifæri til að bæta við marki. Serbar liggja aftarlega og sækja á fáum mönnum.
0-2 Sara Björk Gunnarsdóttir hefur komið Íslandi í tveggja marka forystu. Hún fékk boltann rétt fyrir utan vítateig og skaut góðu skoti með vinstri fæti. Boltinn hafnaði rétt við stöngina og fögnuðu íslenska liðsins mikill í hitanum. Frábær byrjun á seinni hálfleik líkt og hinum fyrri.
0-3 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur skorað þriðja mark Íslands á 67. mínútu. Eftir misskilning í vörn Serba fékk Margrét Lára boltann fyrir opnu marki og renndi boltanum innfyrir marklínuna. Strax á eftir gerði Sigurður Ragnar fyrstu breytinguna á liði sínu. Sara Björk fór af velli og inn kom Katrín Ómarsdóttir.
0-4 Katrín Ómarsdóttir var ekki búin að vera lengi inn á þegar hún var búin að skora. Markið kom eftir góðan undirbúning Hólmfríðar Magnúsdóttur. Markið kom á 70. mínútu. Á 76. mínútu var gerð önnur breyting á íslenska liðinu. Dóra Stefánsdóttir fór útaf og inná kom Erla Steina Arnardóttir. Skömmu síðar fengu Serbar skyndisókn og úr því kom besta færi þeirra til þessa í leiknum en skot þeirra fór framhjá.
Leiknum er lokið með 4-0 sigri íslenska liðsins. Síðasta skiptingin kom á 84. mínútu þegar að Rakel Hönnudóttir kom inn á fyrir Hólmfríði Magnúsdóttur. Erla Steina Arnardóttir fékk að líta gula spjaldið á 89. mínútu. Íslenska liðið fékk ágætis tækifæri til að bæta við marki en það tókst ekki enda var orðið dregið af leikmönnum í hitanum.