Leikur Serbíu og Íslands hafinn
Leikur Serbíu og Íslands er hafinn í Serbíu og er mjög heitt í veðri, hitinn um 35 - 37 stig. Íslensku stelpurnar byrjuðu engu að síður af krafti, í hvítum búningum og áttu fyrsta markskotið á 3. mínútu sem fór reyndar langt framhjá.
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi yfir strax á 4. mínútu. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir átti sendingu út á kantinn á Hólmfríði Magnúsdóttur. Hún kom boltanum fyrir markið þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir tók boltann niður af yfirvegun og kom honum í netið. Frábær byrjun.
Eftir gríðarlega kraftmikla byrjun Íslendinga hefur aðeins dregið úr hraðanum en íslenska liðið stjórnar leiknum. Margrét Lára kom boltanum í markið á 10. mínútu en það var dæmt af vegna rangstöðu. Eitt gult spjald hefur litið dagsins ljós og það fengu Serbar á 12. mínútu.
Enski dómarinn hefur flautað til hálfleiks og eru leikmennirnir hvíldinni fegnir enda ákaflega heitt í veðri. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks átti Dóra Stefánsdóttir gott skot sem hafnaði í þverslánni. Íslenska liðið hefur stjórnað leiknum algjörlega og fengið ágætis tækifæri til að bæta við marki. Serbar liggja aftarlega og sækja á fáum mönnum.
0-2 Sara Björk Gunnarsdóttir hefur komið Íslandi í tveggja marka forystu. Hún fékk boltann rétt fyrir utan vítateig og skaut góðu skoti með vinstri fæti. Boltinn hafnaði rétt við stöngina og fögnuðu íslenska liðsins mikill í hitanum. Frábær byrjun á seinni hálfleik líkt og hinum fyrri.
0-3 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur skorað þriðja mark Íslands á 67. mínútu. Eftir misskilning í vörn Serba fékk Margrét Lára boltann fyrir opnu marki og renndi boltanum innfyrir marklínuna. Strax á eftir gerði Sigurður Ragnar fyrstu breytinguna á liði sínu. Sara Björk fór af velli og inn kom Katrín Ómarsdóttir.
0-4 Katrín Ómarsdóttir var ekki búin að vera lengi inn á þegar hún var búin að skora. Markið kom eftir góðan undirbúning Hólmfríðar Magnúsdóttur. Markið kom á 70. mínútu. Á 76. mínútu var gerð önnur breyting á íslenska liðinu. Dóra Stefánsdóttir fór útaf og inná kom Erla Steina Arnardóttir. Skömmu síðar fengu Serbar skyndisókn og úr því kom besta færi þeirra til þessa í leiknum en skot þeirra fór framhjá.
Leiknum er lokið með 4-0 sigri íslenska liðsins. Síðasta skiptingin kom á 84. mínútu þegar að Rakel Hönnudóttir kom inn á fyrir Hólmfríði Magnúsdóttur. Erla Steina Arnardóttir fékk að líta gula spjaldið á 89. mínútu. Íslenska liðið fékk ágætis tækifæri til að bæta við marki en það tókst ekki enda var orðið dregið af leikmönnum í hitanum.
Góður útisigur við erfiðar aðstæður og við taka tveir heimaleikir. Leikið verður við Slóveníu 21. júní og Grikkland 26. júní.