KSÍ klúbburinn í 18 ár
Í ár er KSÍ klúbburinn að hefja sitt 18. starfsár og er fyrirkomulag klúbbsins að mestu með sama sniði og undanfarin ár. Síðustu ár hefur klúbburinn verið fullsetinn en nú eru örfá sæti laus og eru áhugasamir hvattir til þess að hafa samband við neðangreinda umsjónarmenn.
Fjórir leikir verða hér heima í sumar, vináttulandsleikir gegn Wales og Azerbaijan og 2 leikir í undankeppni fyrir HM 2010, gegn Skotlandi og Makedóníu.
Árgjald klúbbsins fyrir árið 2008 er 50.000 kr. og eru innifaldir miða á leiki A landsliðs karla, léttar veitingar fyrir leik og kvöldverður fyrir leikinn gegn Makedóníu.
Umsjónarmenn klúbbsins eru:
Halldór Einarsson, formaður halldor@henson.is
Viðar Halldórsson vidar@heimahagar.is
Pálmi Jónsson palmi@ksi.is