Byrjunarlið Íslands gegn Serbíu
Ísland mætir Serbíu á morgun, miðvikudag, í undankeppni fyrir EM 2009 og er leikið í Kragujevac. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir þennan mikilvæga leik.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður: Ásta Árnadóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún S. Gunnarsdóttir
Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Allir leikmenn hópsins eru leikfærir og tilbúnir í þennan mikilvæga leik sem framundan er.
Leikurinn fer fram á nýjum og glæsilegur leikvangi sem tekinn var í notkun fyrir 6 mánuðum og tekur 20.000 manns í sæti. Leikvöllurinn sjálfur er í frábæru standi, grasið rennislétt. Aðstæður allar eru ákaflega góðar en helst er það hitinn sem að plagar leikmenn en hitinn í Kragujevac er um 30 stig.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 14:50 en leikurinn sjálfur hefst kl. 15:00.