Fyrsta æfingin körlunum var í morgun
Landsliðshópurinn æfði í morgun á Framvelli og var þetta fyrsta æfingin síðan að hópurinn kom saman fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales á miðvikudaginn. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, stjórnaði æfingunni en Ólafur styðst við hækjur þessa dagana en hann gekkst undir aðgerð síðastliðinn föstudag vegna meiðsla á fæti. Það var hinn leiftursnöggi búningastjóri, Björn Ragnar Gunnarsson, sem myndaði Ólaf skunda af æfingu í morgun
Hópurinn æfir aftur í dag og tvisvar sinnum á morgun en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 28. maí kl. 19:35. Miðasala fer fram á midi.is og hér á heimasíðunni.