Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2008
Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu fara fram í knattspyrnuhöllinni á Akranesi laugardaginn 24. maí 2008. Keppni hefst kl. 12.00, upphitun kl. 11.30.
Keppt er í tveimur styrkleikaflokkum og konur og karlar keppa saman í liði.
Þetta er samstarfsverkefni Íþróttasambands Fatlaðra, Knattspyrnusambands Íslands, Íþróttabandalags Akraness og íþróttafélagsins Þjóts á Akranesi. Undanfarin ár hefur Íþróttasamband Fatlaðra og Knattspyrnusamband Íslands staðið fyrir slíkum leikum innanhúss og utanhúss í samstarfi við aðildarfélög ÍF.
Samstarf ÍF og KSÍ hefur miðað að því að efla áhuga fatlaðra á knattspyrnuiðkun og koma af stað umræðu um gildi þess að fatlaðir geti stundað knattspyrnu, hvar á landi sem þeir búa. Markmið er að knattspyrnufélög taki þátt í þessu samstarfi og bjóði upp á æfingar fyrir fatlaða og/eða skapi þeim skilyrði til að taka þátt í æfingum með sínum jafnöldrum.
Stefnt er að því að ÍA standi að knattspyrnuæfingum fyrir fatlaða í haust í samstarfi við íþróttafélagið Þjót.
Nánari upplýsingar um samstarf IF og KSÍ gefur Guðlaugur Gunnarsson gulli@ksi.is