Ísland - Wales miðvikudaginn 28. maí
Ísland og Wales mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 28. maí og hefst leikurinn kl. 19:35. Leikurinn er liður í undirbúningi fyrir þátttöku Íslands í undankeppni fyrir HM 2010 en fyrsti leikur íslenska liðsins í þeirri keppni er 6. september þegar Norðmenn eru sóttir heim.
Ísland og Wales hafa leikið 5 A landsleiki karla til þessa og hafa Íslendingar farið einu sinni með sigri af hólmi. Það var árið 1984 í undankeppni fyrir HM 1986 og lögðu þá Íslendingar Wales, 1-0, með marki Magnúsar Bergs.
Einu sinni hafa liðin skilið jöfn en það var árið 1981 þegar að Ásgeir Sigurvinsson skoraði tvö glæsileg mörk í 2-2 jafntefli á Vetch Field. Wales hefur aftur á móti sigrað þrisvar sinnum, síðast 1-0 í vináttulandsleik sem leikinn var í Wales árið 1991.
Miðasala er í fullum gangi og er hægt að fá miða á forsöluafslætti ef keypt er á netinu fyrir leikdag. Miðaverð er eftirfarandi:
Forsala til og með 27. maí
- Sæti í rauðu svæði kr. 3.000
- Sæti í bláu svæði kr. 2.000
- Sæti i grænu svæði kr. 1.000
Miðaverð á leikdag 28. maí
- Sæti í rauðu svæði kr. 3.500
- Sæti í bláu svæði kr. 2.500
- Sæti i grænu svæði kr. 1.500
Miðasala fer fram í miðasölukerfi frá midi.is
Börn 16 ára og yngri fá miðana með 50% afslætti.
Að kaupum loknum fær kaupandinn sendan e-miða (pdf skjal) í tölvupósti, sem hægt er að prenta út og nota sem aðgöngumiða á völlinn