Luka heldur áfram að heimsækja félögin
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 og U21 karla, heldur áfram að sinna útbreiðslustarfi KSÍ og liður í starfinu er að heimsækja félögin. Luka var í Vestmannaeyjum og á Sauðárkróki í vikunni og var vel tekið.
Á mánudaginn verður Luka svo með fyrirlestur hjá Víkingum í Víkinni kl. 20:00. Föstudaginn 30. maí verður Luka svo með æfingu á Bolungarvík kl. 10:00 og fyrirlestur á Ísafirði kl. 16:00. Áhugasamir eru hvattir til þess að leita nánari upplýsinga hjá viðkomandi félögum.