Atli Sveinn Þórarinsson inn í hópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales þann 28. maí næstkomandi. Atli Sveinn Þórarinsson, úr Val, kemur inn í hópinn. Kemur hann í stað Hermanns Hreiðarssonar en eftir læknisskoðun í morgun fékkst endanlega staðfest að hann er kinnbeinsbrotinn og getur því ekki verið með í þessum leik.