Lumar þú á góðri grasrótarmynd?
UEFA stendur fyrir ljósmyndasamkeppni á meðal aðildarlanda sinna þar sem besta ljósmyndin er tengist grasrótarstarfi er verðlaunuð. Verðlaunamyndinni er ætlað að sýna þá gleði og það gildi sem þátttaka í knattspyrnu gefur af sér.
KSÍ auglýsir hér með eftir myndum og mun sérstök valnefnd velja þá mynd er keppir fyrir Íslands hönd í ljósmyndasamkeppninni að þessu sinni. Myndum skal skila á tölvupósti á gulli@ksi.is fyrir hádegi 29. ágúst 2008.