Leyfisveiting Fjölnis leiðrétt
Að fengnu samþykki formanns leyfisráðs hefur leyfisstjóri leiðrétt leyfisveitingu Fjölnis vegna þátttökuleyfis í Landsbankadeild karla 2008.
Gerð var athugasemd við leyfisgögn Fjölnis þar sem forsenda S.12 - Aðstoðarþjálfari meistaraflokks var ekki uppfyllt.
Í ljós hefur komið að menntun þjálfarans var ekki skráð að fullu í gagnagrunn KSÍ og er því leyfisveiting Fjölnis leiðrétt samkvæmt því.